Helgin + mán!
Jáhh.. get nú bara ekki sagt annað!
Fór um borð á svokölluðum hvalveiðibát!
Jii.. hann vaggaði allann tímann!
Reyndar fann ég ekki fyrirþví en Andri og Elva voru með einhverja sérstaka tilfinningu fyrir því!
Vangefin ;D
Tók nokkrar myndir af því kvöldi! Mun setja þær hingað inn á innan skamms:)
Ég söng alveg hástöfum, Elva var hrikalega hress og Andri Tómas drakk heila rauðvinsflösku úr plastglasi!
Honum fannst hann soldið kúl!
Svo var hann að kenna mér hvernig maður á að drekka rauðvín!
Meira svona bara sýna mér það ;)
Elva og Andri fóru á kostum þetta kvöld!
Og jú ekki má gleyma Gilla.. sem hélt því fram að síminn hans væri vatnsheldur!
Og gaf mér leyfi til að stinga honum ofan í sódavatnið mitt!
Þegar ég dró hann uppúr stóð ,,Insert simcard'' framan á skjánum!
Sjitt.. ég hélt ég yrði ekki eldri, hló mig allaveganna alveg máttlausa!
Ég og Birna tókum einnig lagið! það var einnig mjööög eftirminnilegt!
Og líka þegar Tinna *fulla* var að mæta á bátinn, ég leit upp (við vorum komin niður í bátinn) og þar blasti við afturendinn á Tinnu sem flassaði alla sem niðri sátu! (Hún var í hvítu flaxandi pilsi) úbbbsíí...
Laugardagskvöldið endaði þannig að ég keyrði Elvu á Hverfis og Gilla heim;)
Ég fór síðan sjálf bara heim að kúra!

Andri að fara á kostum!

Birna í essinu sínu!

Nokkrir hressir hérna í endann! Ég alveg bjútíful!!
Sunnudagurinn var ekkert annað en pjúra afslöppun!
Var bara að hanga heima og lúðast með systrum mínum;)
Eða litlu litlu systur minni:)
Eftir að við höfðum lúðast eiginlega allann daginn ákváðum við að kíkja á ömmu og afa á Markó;)
Þar hittum við nánast alla fjölskylduna!
GAMAN að knúsast aðeins í sætu frændsystkinum mínum;*
Mánudagurinn, vaknaði alveg að DREPAST í hálsinum! var reyndar farin að vinna fyrir verk í hálsinum á sunnudeginum, sem leiddi útí það að verða alvarlegur!
Fór uppí skóla að ná í einkunnirnar mínar!
Mér gekk alveg sómasæmilega!
Lélegasta árið mitt hingað til verð ég reyndar að segja!
En allt náðist;)
Eftir einkunnirnar fór ég bara að kíkja á minn heittelskaða Hans Orra sem var að fara yfir um, hann var (er) svo ánægður að vera búinn í prófum og búin í MENNTASKÓLA! Ég fékk að heyra það ANSI oft í dag!
Hélt ég væri að verða geðveikt:)
Eftir það fór ég svo bara í vinnuna.. og var alltaf að drepast meira og meira í þessum blessaða hálsi!
Ég lét mig þó hafa það og vann út allann daginn, fann að ég var orðinn aðeins hás meira segja!
Eftir vinnu fór ég bara til Hansa og við fórum eitthvað aðeins að stússast!
Síðan varð mér alltaf meira og meira ílt og mér fannst ég vera að hitna öll í framan og eitthvað!
Þangað til að ég ákvað að fara á læknavaktina..
Ég dró kallinn minn með mér og hann beið eftir mér..
Viti menn.. daman sem aldrei verður veik... er komin með STREPTAKOKKA!
Þvílíkt smitandi! (Hansi pottþétt smitaður) og læknirinn bannaði mér að fara í vinnuna næstu daga!
Gad... hvað geri ég þá!? bara hanga heima?
Það er eins gott að þetta fari ekki á verra stig en þetta er á núna... að ég geti ekki borðað neitt.. .
nema þá fljótandi! Þá verð ég alveg kreiiizý!
Vonum bara það besta;*
Smá yfirlit yfir næstu daga.....
Miðvikudagurinn 23.maí Klipping
Laugardagurinn 26.maí Útskrift hjá Hansa kl: 10:45
Laugardagurinn 26. maí Brúðkaup hjá Önnu og Gunna kl. 17:30
Laugardagurinn 26. maí Útskriftarveisla hjá Hansa kl: 16 - ...
Laugardagurinn 26. maí Veisla hjá Önnu og Gunna um kvöldið!
Laugardagurinn 26. maí Hansi minn með smá boð um kvöldið fyrir nokkra;*
Sunnudagurinn 26.maí Saga Steinsen alveg búin á því eftir allann Laugardaginn!
Hafið það gott, knúsar og kossar;*;* ShAgGy!
Gaman að þessu.. .
Já ég LOFA:)
Hmm, eins og kannski ekki alveg allir vita, þá var síðasta prófið mitt í dag!
Jáá.. viti menn, það var ekkert það erfitt:)
Ef ég segji sjálf frá, gekk bara svona frekar vel;)
Enda var þetta hin blessaða enska...
Fæddist góð í henni skoh, (DJÓK)!
Eftir prófið fór ég uppá Jörfa leikskóla...
Held ég sé komin með vinnu þar;)
Ekki leiðinlegt það!
Hitti Hansa lúða, hann á ennþá 1 próf eftir, hehehe!!
Ég ákvað að gera mér góða ferð uppí Ikea í dag!
Vantaði eitthvað smotterí í herbergið mitt,fannst það eitthvað svo tómlegt
svo ég ákvað að bæta nokkrum litum við:) Spá í að gefa ykkur smá preview..
Einn þriðji af fataskápnum mínum;*
Hillurnar mínar, sem ég get ekki ákveðið hvað á að vera í!??
Osso.. fænallý drekaplantan mín;*
Meira fáiði ekki að sjá. ..
Annars þá á Lísa María Kristjánsdóttir,systir hans Hansa afmæli í dag;*
Fór einmitt í afmæli til hennar í kvöld:D
Fengum ótrúlega góðan mat og góðan eftirrétt!
Takk fyrir mig;*
Svo á Anna Guðrún Steinsen sæt frænka líka ammæli í dag!
Náði reyndar ekki að óska henni til hamingju,
En vonandi fyrirgefur hún mér það;*
Ég og Sólveig mín SÆTAR?!? ójá! í Árshátíð 10.bekkjar í Réttó;*;*
Fer að vinna á morgun.. og hinn og hinn! og svo alle.. næstu viku!
Nema þegar ég næ í einkunnirnar! ég er ótrúlega hrædd!
Langar svo mikið að taka ekki endurtektarpróf;'(
En ég er eiginlega pottþétt á því!!
Helvítis djöfulsins listasagan!
Anskotans,fokking!
Nei, okei ég er hætt;*
Dóra svo að halda uppá ammælið sitt á morgun:)
Ég er að fá næturgest.. þannig ég get vonandi bara kíkt í svona klukkutíma!
Einn og hálfan í mesta lagi:(
En auðvitað verð ég að sýna lit!;)
Núna er þreytan algjörlega búin að taka yfir! Og mig langar dáldið að horfa á..
Dawsons Creek! Þannig, pælí að skella henni í tælkið og sofna værum blundi!;)
Njótið næturinnar? hOTTÝ kveður! SHAGGY;*!
sÓLIN ER komin:D
Já, ég gaf mér leyfi til þess að blogga ekkert þangað til í dag!
Var nefnilega í doldið erfiðu prófi í morgun skoh;)
Jájá.. en ég náði því samt alveg;)
Fór eftir prófið mitt bara heim til Hansa og við elduðum pizzu;)
Með gúrkum settar ofaná eftirá og kál og svona homemade hvítlaukssósa;D
IT WAS DELICIOUS!
loooooovvvvvvvviiiiiinnnnnnnggggggg it :)
Í þessum töluðu orðum, stúlkur mínar og herrar og bara gamalt fólk og allir!
Þá sit ég inn í nýja, fallega , vel skipulagða og fullkomna herberginu mínu!
Já! ándjóks;) sit við nýja skrifborðið mitt sem ég iiiiiiilska! og er að horfa á fataskápinn minn sem er..
GORDJÖSS!;*
Já, gaf mér líka leyfi til að monta mig aðeins á þessu öllu saman!...
Þið vitið allar hvað ég var orðin MEGA spennt:D

Síðasta prófið mitt er næsta þriðjudag!
Þannig það verður bara svona rólegur lærdómur þangað til!
Er að fara að vinna líka á morgun:) Fæ pjúra yfirvinnu frá 1-5!
Get nú ekki sagt að ég sé ekki ánægð með that!!
En núna er ég að drepast í mjöðminni,
pælí að fara að hafa til allt enskudraslið sem ég þarf að læra..
kannski fara að glósa?
GÓÐ:)
sHAGGy!
Sjitt!! mig langar í þristbita og kitkat og mentos!!
Afmæli
Fæddist gullfalleg lítil stelpa!
Ég var reyndar bara 3 ára þá en ég DÝRKAÐI hana!
Hún reyndist vera hálfgerð geimvera, en alltaf samt svo sæt;*
Hún óx úr grasi, allt frá því að kryfja fugla og sjóða þá í potti..
Í að spyrja hvort það séu virkilega hísgrjón í grjónagraut?
Í dag er hún sætust, bestust og ein af bestu vinkonum mínum;*
Við höfum gengið í gegnum margt saman..
Borða snjó á kvöldin útí glugga í funó,
Leynistaðurinn sem ALLIR áttu!;)
Typpakallinn í funaborg??
Æjj þú ert best:);*
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hún Sjöbba;*
Hún á afmæli í dag:)

Til hamingju með daginn ástin mín;*
Ég elska þig mikið mikið mikið!
Eða, lovjú lovjú lovjúú...;*
Þín stóra systir;* Shaggy:)
lÆRILÆRIlæri
Góðan daginn, allir saman:)
Það er bara morgunblíða úti, samt smá kalt!
Mætti hérna gallvösk uppá Þjóðarbókhloöðu klukkan korter yfir átta í morgun!
Djjööööfulll var ég fersk maður!
Ómægot það lá við að mér yrði hrint!, nei okei ég ýki kannski aðeins! En ég tók á sprettið og náði þvílíkt góðu borði ;)
Sveibý er hérna með mér! erum þvílíkt dygtig! Enda ekki hægt að ætlast til annars frá okkur:D
Mammsí sæta átti 40 ára afmæli í gær og í tilefni að því fórum við á Hereford!
Mmmm... mmm... MMMMM... mMmMmM.. sjétturinn hvað það var gott!
Fékk bara nautalundir með bernaise sósu! og hereford salat með FETA:D
Gáfum mömmu bara smotterí, náttbuxur og blóm:) Þar sem þau eru búin að halda uppá ammælið sitt;)
Heyrðu, stúlkur mínar.. þið seð erum að lesa þetta.. haldiði að það sé ekki verið að pússa parketið Í herberginu mínu:D Ómælord! Það þýðir að um helgina er ég að fara að flytja inn í nýtt herbergi.. sjétt!!
Það þýðir að eftir prófin langar mig ýkt mega mikið að bjóða ykkur aftur heim dúllur:)
En núner ég að pissa á mig! svo ég ætla að fara á klósettið! og svo halda áfram að vera dugleg að læra:)

Lestrarhesturinn er OFF!:)
Læra
Ég er orðin svo mega stressuð! að ég ældi í dag!
Án DJÓKS?! var samt að drekka grænt te með lime útí líka..
...gæti hafa verið það!
Lærði og lærði og lærði í dag! jább..
Fór á starfsmannafund, flippaði aðeins þar og skellti mér svo..
ásamt skólabókunum uppí vesturbæ að passa hana nöfnu sætu;*
Við gerðum margt saman, eins og t.d.
Að borða kex, hlaupa um í kjallaranum [eða ég að hlaupa og hún í göngugrindinni]
Svo svæfði ég hana bara, þegar ég var búin að gera hana alla æsta;*
Þegar Sjeibí kom fórum við bara uppí lesstofuna þarna á eggertsgötunni,
Það var ágætt!:)
En ég á samt ógéðslega mikið eftir að læra og lesa og læra utanbókar og AAAAAAAHHH!!
mig langar að grenja!
Ohhh.. ég hata prófin! Ég hitti Hansa í 10 mínútur í fyrradag
og hálftíma í morgun??
That's not normaal, sjá hvað þessi próf gera við mann,
áður en hann veit af verður hann búinn að læra yfir sig af stærðfræði!
Og ég ekki nógu mikið fyrir listassögu!
Sjitturinn hvað ég verð spæld ef ég drullast ekki til að ná þessum helvítis prófum!
Það er bara eins gott!!
Nenni sko ekki að taka 3 bekk aftur!;)
Jæja rúmið mitt er að kalla þvílíkt á mig, best að ég drífi mig í háttin;)
Sofið rótt;*
S
Hafið bláa....
B lá
Bl
Sumarið er tíminn..
Hmm.. ég er að spá í að byrja með þessa síðu á fullu eftir stúdentsprófin mín! Já mér finnst ég alveg meiga segja stúdentspróf þar sem ég fer bara í eitt venjulegt próf. Þrjú próf í heildina, frábært!
Ég fór í göngutúr áðan með Tristan og ég bjó um rúmið mitt í fyrsta skiptið í mörg ár!
Enda er ég búin að fá ný rúmföt og nýtt rúmteppi, æ lov it!
Á meðan prófin eru, er allt glatað!
Ég sé vinkonur mínar ekki neitt og ég sé Hansa í svona sirka 7 mínútur á dag!
Það er samt bara fínt, eða ég kvarta allaveganna ekki mikið, leiðist bara smá!
Ég er líka búin að vera ógéðslega dugleg að læra og get sko alveg klappað fyrir sjálfri mér!
Ég er samt búin að vera að fá svona vibbalegan hausverk svona now and then.. er ekki alveg að fíla það!
En sumarið fer að koma, ég er alveg komin með hlýju í kroppinn*
Var að vafra um á myspace og rakst þá á eina mynd sem mér fannst helvíti sumarleg, Helena þú kannast kannski við hana;)
Í sumar munum við stelpurnar hafa obboslega gaman! ójá.. ætlum að vera duglegar að skella okkur ú sumó, útileigur og svoleiðis :) Ég hlakka til! Svo getur vel verið að ég fái hann Hansa til þess að koma með mér í eina og eina útileigu eða sumó líka :)
Jáá.. eitt ár eftir af skólanum, [það er að segja ef ég næ!] Kannski fjarnámi? Kannski ekki, Kannski....
En jæja, ég ætla að myspaceast aðeins meira, er svo dugleg að adda svona design fólki:) og kaupa!!
[Er reyndar bara búin að kaupa eina eyrnalokka, kannski skó] en þetta er góð byrjun;)
Amma;*
Hún elskulega amma mín hafði þá verið vakandi í alla nótt og séð allskonar verur og hluti sem voru auðvitað ekki þar, hún sofnaði ekkert um nóttina þannig að afi hringdi í mammsí klukkan 8 um morgunin og sagði að amma væri alveg gengin af göflunum! Þessari hræðilegu tilfinningu var ekki bara DEMBT á okkur heldur fyldi henni þessi þvílíku óþægindi í hjartanu líka.
Ég fór til ömmu minnar uppá spítala eftir skóla og langaði að fara að gráta. Amma mín sem alltaf var svo róleg og góð, titraði öll og iðaði af skelfingu. Hún gat ekki setið kyrr og þurfti að kíkja í allar skúffur og horfa upp um alla veggi, þetta var ekki eðlilegt. Ég varð ekki virkilega hrædd fyrr en amma var að reyna að sýna mér ósýnilega gyllta ökklabandið sitt, sem var á fætinum ásamt hinu ökklabandinu hennar, þá datt ég á botninn. Þennan dag 12.apríl árið 2007 aðeins nokkrum dögum eftir 19 ára afmælisdag minn, verður það helmingi verra, sem við höfum kosið að kalla alzheimer. Ömmu fer svo seinna með tímanum að hraka, meira og meira.. og hún verður aldrei aftur sama amman mín;* Amman sem spáði alltaf RÉTT fyrir manni í bollanum, amman sem gaf manni alltaf smá klink ef hún átti, amman sem varð glöð bara við að sjá andlitið á barnabörnunum sínum, amman sem hringdi alltaf og spjallaði klukkutímum saman, amman sem teiknaði dúkkulísur fyrir mann þegar maður var lítill, amman sem hnoðaði kúlur úr öllu sem hún borðaði, amman sem eldaði alltaf skötuna á þorláksmessu, amman sem gaf mér hlýju og ást, amman sem leyfði mér alltaf að gista uppí rúminu sínu með sér, amma sem söng á jóladag, amma sem gerði allt fyrir alla, amma sem ég elskaði svo ótrúlega mikið;*;*;*
Ég veit að hún sæta amma mín er auðvitað við hestaheilsu, en þetta er bara svo mikið sjokk, og er dagurinn minn bara búin að vera .... ósköp venjulegur dagur með risa stórum vondum kafla sem var kastað ofan á hann.
En ég elska ömmu mína og ætla að standa við bakið á henni í gegnum þennan erfiða sjúkdóm;*

